Bára beib

Báran og lífið í Danaveldi....

Friday, December 22, 2006

Flutt.is

Míns er flutt yfir á baraklara.bloggar.is blogspot er búið að vera með e-ð bévítans bögg......kíkið yfir ;)

Wednesday, December 13, 2006

Pirripú!!!!

Mikið ótrúlega varð ég reið yfir því hvað fólk getur verið mikil fífl. Varð svo reið, sár og ég bara veit ekki hvað þegar það kom í fréttunum að fólk hafi verið að hringja í lögregluna og kvarta yfir því að komast ekki framhjá slysinu sem var á sunnudaginn og allt þannig.
Hvað er að verða um Ísland? Hvar er náungakærleikurinn og allt það? Mér finnst þetta svo mikil vanvirðing og svo mikil heimska að það nær engri átt. Að þetta sé farið líka að snúast um að fólk pirri sig líka yfir því að það hafi ekki verið meira um þetta í fréttum og allt þannig í sambandi við það að vegurinn hafi verið lokaður. Ég heyrði þetta alveg í fréttum og löngu áður en það varð svona mikil röð. Ég beið þarna í næstum 2 tíma örugglega en ég lagði þá bara, hringdi e-ð og las. Datt ekki í hug að pirra mig á þessu heldur hugsaði til þeirra sem lentu í þessu og að þetta hafi örugglega verið alvarlegt slys því þetta tók svo langan tíma. Það dó maður í slysinu. Hversu sorglegt er að fréttirnar hafi liggur við frekar farið að snúast um pirring í fólki og frekju heldur en hversu alvarlegur hlutur gerðist. Og það eru að koma jól og þetta er ekki auðveldasti tíminn til að missa einhvern nákominn sér.
Gott að vita af því að fólk hafi hringt og beðist afsökunar, batnandi mönnum er best að lifa en samt sem áður. Aðeins að hugsa meira og af aðeins meiri kærleik heldur en bara það að fólk hafi ekki komist á NÁKVÆMLEGA réttum tíma á einn stað eða annan. Að fólk hafi ekki tekið það bara sem merki að þetta væri alvarlegt því þetta tók svona langan tíma eftir að það var búið að keyra slösuðum á sjúkrahús. Auk þess var veðrið ekki gott fyrir fólk að rannsaka slysið.

Vona bara að fólk fari annars að hugsa sinn gang. Hvort stressið sé svona rosalega mikið í þjóðfélaginu að við séum algjörlega hætt að sína náunganum kærleik og virðingu.

Thursday, December 07, 2006

Ísland fagra Ísland

Um daginn skrifaði ég rosalega mikið hérna. Það var einn uppáhaldstíminn í lífinu mínu. Klukkan rétt eftir miðnætti, jólin að nálgast, dimmt úti, kyrrð og ró. Ég sat og skrifaði hugsanir mínar og hugleiðingar og hlustaði á jólalög til skiptist við önnur lög. Kóóóósý nema....bloggið þurrkaðist út. Varð náttla smá pirruð en....það þýðir ekkert!

Kom á klakann í síðustu viku og....er ekki verið að grínast með kuldann!!!!
Svo var ég alveg grandalaus þegar við gengum út með ALLAN farangurinn minn úr Leifsstöð þegar pabbi og Leó komu og sóttu mig. Mamma og pabbi bara komin á nýjan bíl! Rosa flottur og rosa gaman. Og mikið er nú gott að knúsa fólkið sitt :)

Ákvað svo á að kíkja aðeins í miðborgina á laugardaginn með Fríðu, Hörpu og Kollu. Við getum orðað það þannig að glösin urðu aaaðeins fleiri en við höfðum hugsað okkur í byrjun og tókum bæði ávaxtaleikinn og “ég hef aldrei”. Erum reyndar búnar að fara í þann leik svo oft að við erum farnar að skjóta á hvor aðra í þessum leik og getum orðið “lagt í einelti” ;)
Báran kom úr dvala gömlu konunnar sem er ekki búin að nenna að djamma undanfarið....hægt að segja að það hvað ég er orðin óvön hafi bersýnilega komið í ljós um kvöldið þegar ég þurfti færri glös en áður og var slappari daginn eftir. Mæli ekki með því að taka 2 tequila-staup í röð til að sanna fyrir strákum að maður geti það....
Það hafa líka verið “eftirköst” eftir helgina. Miðvikudagurinn var samt góður og engin “áföll” komu þá þannig að ég er sloppin ;) skilja mig sem vita um hvað ég er að tala...hahahhahaha!

Jæja, best að fara að taka sig til...borgin kallar ;)

Thursday, November 23, 2006

Þvílíkt....

Síðan síðast þá........

-munaði litlu að gaur keyrði mig niður á skellinöðru þegar ég var að labba heim úr búð
-voru 2 miðaldra konur næstum búnar að keyra mig niður þegar ég var að hjóla....og var í fullum rétti. Kona sem var á hjóli fyrir aftan mig æpti alveg!!! Besta var að konurnar horfðu á mig eins og ég væri fáviti....ég gaf þeim illt augnaráð til baka. Eiginlega svona dráps....
-í sömu hjóla-ferð var annar gaur næstum búinn að keyra mig niður...ég aftur á hjólabrautinni og með ljós og alles. Hann líka var miður sín og veifaði svona “sorry”....þá brosti ég bara til hans og veifaði á móti J

Já, umferðin getur verið stóóóóóórhættuleg.

Svo munaði líka svo litlu að fullt gaurum hefðu séð mig á g-strengnum einum fata þegar ég var nýkomin úr sturtu eftir æfingu um daginn.
Stóð algjörlega saklaus að klæða mig í enda búningsklefans AÐ ÉG HÉLT!!!! Neinei, það er bara inngangur þeim megin líka. Var að klárast einhver box-æfing og stelpa kemur þar inn...og ég bara stend...og sé svo FULLT af gaurum vera að labba niður tröppur eða e-ð....og liggur við HENTI mér í jörðina!!!
Ég er búin að lenda samt svo oft í vandræðalegum og fáránlegum aðstæðum síðastliðið ár að ég hefði örugglega ekki einu sinni bliknað. Bara hugsað ÚFF eða e-ð. Eða hugsað “vandræðanlegt” en ekkert fundist þetta vandræðalegt.

Á morgun er svo opið í búðum hérna til 12 á miðnætti og svaka jólastemmning. Kveikja á jólaljósum OG JÓLASVEINNINN KEMUR J
Það var eins og ég væri 5 ára þegar Maren sagði mér að jólasveinninn kæmi.
Ég bara NAU!!!!!
Finnst samt fyndið að Danir haldi að jólasveinninn búi á Grænlandi. Vita allir að hann býr í Akrafjalli ;)

Monday, November 20, 2006

taratamm...

Enntá gjorsamlega netlaus.....persónulegi leigjandinn er hættur ad hringja í Mareni greyid út af ollu tví nú veit hann uppá sig sokina.....æi greyid! Getur ekki verid ad bidja um 300 kjell og svona svo hann komist á djammid eda til Køben!

Hélt áfram ad vera englastelpa um helgina. Okkur Sondru fannst vid svo fullordnar (eda norrar) tegar vid vorum ad taka strætó heim úr skólanum á fostudagskvoldid...ég endurtek FOSTUDAGSKVOLDID og horfdum med fyrirlitningarsvip á gelgjurnar sem voru vel fullar í strætó med hvítvín í annarri og øl í hinni.....DJÓK! Ekki alveg fyrirlitningarsvip, kannski frekar ofundarsvip tví tær voru kannski í svo gódum málum í skólanum ad geta fengid sér í adra tánna á fostudagskvoldi.....
Held samt ad ég sé ordin of samviskusom....OF sko....ég man tá tíd tegar ég djammadi á milli prófa...hvad var ég ad spá????? Greinilega ekkert.

Skellti mér svo med Fanney á myndina Borat á laugardagskvoldid. Sniiiiiilld! Hvar skyldi hann hafa fengid sundfotin?

Tad er svo margt sem ég dýrka vid Danmorku. Eins og vedrid. Tegar tid erud kannski ad skafa bílana ykkar á morgnanna eda kvoldin er ég kannski bara ad hjóla eda e-d....pælid í tví?
Tegar ég rolti út í strætó ádan (vildi ad ég gæti sagt í morgun) tá var ég í úlpu en var samt ad steikjast úr hita? Hér er mælirinn nefnilega enntá í + grádum!

Jæja...ég skal hætta.....bodar líka stundum óheppni fyrir mig ad monta mig! Reyndar er janúar mjooooog ískaldur! Ég kvídi fyrir tví! Ég ætla ad taka tetta vedur sem er núna med mér til Íslands en vona ad ykkur sé sama ef ég leyfi smá snjó frá svona 18.desember til 1.janúar?

Best ad fara kannski í sólina í lessalnum.....allavegana halda áfram í sólina í hjartanu ;)

Thursday, November 16, 2006

sko.....

Uuuuuu...tegar ég gerdi "lærdómsplanid" bjóst ég ekki vid tví ad leigjandagaurinn myndi af einhverjum ástædum ekki borga internet-reikninginn og ég tyrfti ad "stelast" á netid í skólanum tví tad er lokad fyrir tad heima...átti bara ad læra allan daginn og mátti fara á netid heima á kvoldin!

Medal annars er ég...:
-búin ad vera ógisslega dugleg ad læra (er ad standast planid)
-vera mætt klukkan 8 á lesstofuna 2 daga í rod og vera tar af leidandi fyrst tangad inn
-fara í salsa-tíma!!!! Ógisslega gaman :)
-fara á kaffihús og endurnýja kynni vid gamla pennavinkonu :)

Finnst svo fyndid ad ég sé med rosalegt lærdómsplan og sé ad standast tad. Lídur næstum eins og ég sé bara Ólof eda e-d ;)
....en jólaspenningurinn og allt tad lætur mig halda á spodunum!

Spenningur....skyldi ég fara á "reif" á morgun eda ekki???? Det ved jeg ikke....

Monday, November 13, 2006

Það er óhætt að segja að ég hafi verið frekar bitur þegar ég vaknaði í gær eftir langan og góðan svefn eftir rólegt og notalegt kvöld. Ég vaknaði með bilaðan hausverk, hita og var ógeðslega óglatt!!!! GARG! Hefði liggur við getað alveg eins verið að skríða heim undir morgun eftir að hafa dansað af mér fæturnar í bænum....eða samt ekki. Þynnka er hræðileg og þá sérstaklega því maður kom sér heldur betur í slappleikann sjálfur. Já, ég verð oft doldið þunn.....er örugglega búin að passa mig svona mikið á djamminu því þynnkan sem ég fékk eftir Septemberfest.....ómæómæ...aaaaaldrei aftur!!!!!

Annars þá er ég farin að efast um að ég búi á efstu hæð. Það er alltaf einhverjir brak og brestir hérna fyrir ofan mig. Frekar óþægilegt, en maður kemst samt ekkert ofar held ég....kannski er þetta eitthvað leynidæmi hérna fyrir ofan!?! Kannski býr danski jólasveinninn þarna og er með gjafaverksmiðjuna þarna uppi? Með fullt af svona álfum að gera gjafir? Allavegana er um að gera að gera þetta svolítið spennó. Og líka að vera svona 5 ára ;)